There's nothing to tell

06.08.2008 23:12:28 / tordisgyda-

Þjóðhátíðin búin, mikið er ég fegin

Yo ho yo ho...

Ég hef verið að velta fyrir mér hvernig hlutirnir eru, hvað fólk gerir vitlaust og hvað ekki. Hvernig fólk hugsar.. Lífið er svo flókið en það þarf samt ekki að vera svo flókið, við gerum flækjurnar sjálf, við hegðum okkur í samræmi við það sem við hugsum. fattiði? Sumt fólk veit ekki muninn á réttu og röngu. Það hugsar ekki áður en það gerir hlutina. Eins og ég stundum, ég geri suma hluti áður en ég hugsa og yfirleitt eftir þá.. þá er ég alveg oh demit ég hefði ekki átt að gera þetta, eða ég hefði ekki átt að segja þetta, en þetta er bara hluti af lífinu. Sérstaklega hjá mér hehe :P

En nóg af pælingunum... Þjóðhátíðin er nýbúin og ég verð að segja að ég er svo hrikalega fegin, eins gaman og var en gvuð ég er komin í smá drykkjarpásu og ég ætla bara að kúra og hafa gaman með vinkonum mínum og fjölskyldu þangað til ég fer í skólann. Kannski vinna aðeins áður, er einmitt að fara í fisk á morgun, jakk.. hélt að ég væri búin með minn vinnífiskkvóta en greinilega er ég ekki alveg búin.
En já skólinn, ég hlakka svo til að fara í skólann. Loksins veit ég hvað ég vil læra og ég er svo spennt! Núna er ég ein með Gabba mínum og hef allan tímann fyrir sjálfa mig. En samt veit ég eigilega aldrei hvað ég á að gera... en þetta breytist þegar skólinn byrjar, Þá verður nóg að gera, vonandi fæ ég vinnu uppá spítala með skólanum.

Ásta Jóna og Júlli voru hérna hjá mér yfir þjóðhátíðina og var geggjað gaman hjá okkur eigilega allan tímann, fyrir utan þegar Ásta kom með sýnar vakningar.. annað hvort kom hún hoppandi á mig kl.11 eða blindfull kl.10 eða með kókdós sem var best!! góð vakning... En þetta var mjög spes þjóðhátíð, margt skeði, margt sást, margir lugu og margir kysstust.

En jæja.. nóg af bullinu í mér í bili, fyrir þá sem lesa þetta ágæta bull í mér...
ég er farin að sofa

Dísan out ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 20:10:57 / tordisgyda-

Til hamingju afi:*

í dag hefði afi minn, hann Hjölli múrari átt afmæli.. þið sem vitið ekki þá er ár síðan hann dó, hann var yndislegur maður og besti afi í heimi, sakna hans rosa mikið :*:*

En já daglegt líf hjá mér er þannig að ég vinn á morgnana í Ísfélaginu, tek til inná milli og set í þvottavélar enþá meira á milli, er þrisvar sinnum í viku í Óvissubúðum, búin að grennast aðeins, segir Fannar allavega hehe... En við erum búin að búa hér í þrjár vikur og það er en ekki búið að gera allt sem átti að gera.. en það kemur, Pabbi, minn yndislegi pabbi er svo góður að hann er bara búin að vera hér að hjálpa mér að bora og læti, svo setti hann parket og málaði og lagaði litlu hlutina inná milli, ótrúlega duglegur kall :)

Svo er maður alltaf að spá, hvort maður eigi að bíða eftir að fótbolta tímabilinu líkur og fara eitthvað með Fannari til útlanda, það er spurningin, en svo er ég að spá þessa dagana hvort ég eigi ekki bara að skella mér ein til Svíþjóðar til Möttu og Ingu Björgu.. maður er svo mikið að spá hehe...
Ég er ekkert búin að hitta stelpurnar, og sumarið á að vera tími til að djaaaaammmaaaa og hafa gaman saman, það kemur, við verðum bara að fara að hittast allar og gera eitthvað saman.. ég bíð þeim í mat bráðum ;)

En jæja, ég er að spá í að fara útí búð að kaupa skinku og smotterí..

blessó ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 19:16:17 / tordisgyda-

Tvær vikur í heimkomu

já það eru bara tvær vikru í heimkomu og við erum bara að fiska nokkuð vel :) erum komin með 51.milljon þannig þetta hlitur að komast alveg uppí 80milljonir :) verð að fá einn góðan túr svo ég geti nu eitt meira þegar eg kem til rvk hehehehe:)

Ég er að deyja úr spenningi að koma heim, ég ætla að gera svo mikið að ég á örugglega eftir að drukkna í verkefnum hehe :) þarf nátturulega að gera íbuðina alveg upp, mála, taka örugglega niður einn vegg, parketleggja, flísaleggja, setja nýja sturtu, henda fataskáp, setja örugglega nýjan fataskáp.. og haldiði að ég geri þetta ein... NEI... hann faðir minn er svo ótrúlega klár og duglegur kall að hann ætlar að hjálpa mér að með íbuðina, þannig í fríinu mínu þa ligg ég sko ekkert í leti.. ég verð að vinna..

Svo er ég búin að ákveða að ég ætla í svaðalegt aðhald þegar ég kem heim, kaupa árskort í íþróttamiðstöðina og bara vera dugleg.. en það er léttara að segja það en gera það, ætla einmitt að láta Hjördísi systur koma með mér og ýta á eftir mér, hún er voðalega góð í því :) ég þarf alltaf einhvern til að ýta á eftir mér, ég er ekki með nógu mikinn aga til að fara sjálf, nema þegar ég er reið :o ekki viljum við það að ég verði alltaf reið...  hehe.. langar að komast í sama form og þegar ég var í sundi en það á ALDREI eftir að ske :P ég var vöðvabúnt og þvílíkt flott, annað en í dag :o

En já ég held þetta sé bara nóg í bili, ég kvet vinkonur mínar áfram í að blogga, svo ég viti nú hvað er að ske í þeirra lífi, hef svo lítið heyrt í þeim :( og erna BLOGGAÐU hehehe;)

Dísan kveður

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 06:55:33 / tordisgyda-

Heimkoma 5.apríl

Vá ég nenni svo ekki að skrifa blogg hehe...

EN ég verð víst að gera það fyrst ég er alltaf að röfla í öðrum að skrifa, eins og Erna.. hehe..
Við vorum að veiða fullt af þorsk sem var voða nice, en svo alltieinu týndum við honum, bara fyrst í nótt :/ ömurlegt, ég var einmitt að segja strákunum að ég vildi hafa mikið að gera alveg þangað til við komum heim, þá líður allt svo fljótt..

Ég fer ekki á kelly :( fæst engin lifandi manneskja til að koma með mer, en anna ester sagði við mig að hún ætlaði að koma næst þegar hún væri e-h staðar nálægt íslandi, þá ætlaði hún pott þétt með mér ;) eins gott að hún stendur við það :)

En góðar fréttir, ég fékk íbúðina niðri heima og ég og fannar ætlum að flytja (hann svona nokkrunveginn) niður og vera bara tvö ein, hversu kósý er það,  ég veit það er niðri heima, en við fáum þó að vera smá í næði.. ég og pabbi ætlum uppá land einmitt þegar við komum heim og þá verður haldið í ikea að skoða fullt af dóti :D ég hlakka ekkert smá til að fara og kaupa allt draslið sem ég ætla að kaupa :D
Svo verður fannar úti í útlöndum þegar ég kem heim :( ömurlegt, þannig ég var að spá í að fara bara uppá land til Sunnu minnar og hafa það kósý bara, fara í heimsóknir og kannski kíkja niðrí bæ eina helgina að drekka smá bjór híhí, soldið langt síðan ég fór á fyllerí, og ég ÆTLA að draga Ernu, Sunnu, Kristnýju, Birgittu og vonandi Söru mína líka með mér niðrí bæ :D enda fallegur hópur þar á ferð ;)

hakka svo til að koma heim, ömurlegt að koma heim í nokkra daga og fara svo aftur á sjó, með engan Fannar eða enga Mömmu, ég hef þó Pabba, annars væri ég alls ekki hérna ;)

En jæja, kojan mín blasir hérna við mér og snakkpokinn minn og kókið mm... svo er það Brothers and Sisters :D einn þáttur og svo fer maður að lúlla sér

Góða nótt krakkar hehe :*:* miss you :*:*

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 00:56:04 / tordisgyda-

Kelly?

jæja annað bloggið mitt í vikunni, hvað er að ske?

okey ég var að lesa bók sem heitir "svo fögur bein" og hún situr alveg svakalega í mér.. ég er bara en í sjokki,þetta er önnur bókin á ævi minni sem hefur sitið svona í mér.. hin var "hann var kallaður 'þetta' ".
svo fögur bein er um 14 ára stelpu sem heitir súsý, hún er myrt og nauðgað af nágranna sínum og hún fer til himna, hún fylgjist með fjölskyldu sinni og vinum frá himnaríki. hún fylgjist með hvernir þau komast í gegnum sorgina.
Ef þið eruð ekki búin að lesa þessa bók þá hvet ég ykkur til að fara úti bokabúð og fjárfestið þessa bók, HELST NÚNA.. ;) já lesið hana áður en myndin kemur út, hún kemur út á næsta ári og ég hef aldrei verið spenntari, eeen maður verður að bíða, því miður ;)

útí allt annað en bækur.... ég var að spá að fara núna í apríl til Danmerkur á kelly clarkson tónleika, ég veit ég er ógeðslega glötuð, en mér gæti ekki verið meiri drullusama, ég er búin að reyna a draga silju rós með mér og hún ætlar að hugsa sig aðeins, ég er búin að múta henni með miða á tónleikana.. hehehehe... vonandi tekst það;)

Svoerum við frænkurnar vonandi að fara í sumarbústað eina helgi í apríl, og makar fara með, vonandi á fannar fríhelgi þá ;) verðum þá 16manns ef við förum öll :o við finnum vonandi stórann bústað :P þurfum einmitt að fara að ræða um þetta, hvaða bústað, hvaða helgi hentar best.. svo ef við förum í bústað þá var ég ð spá í að panta einn skemmtikraft, bara svona upp á funið.. þið fáið EKKI að vita það fyrr en í bústaðinum ;)

Já það verður mikið að gera í apríl, ég, gummi og vonandi hjördís þurfum að fara á svona námskeið fyrir sjóinn.. held það verði geðveikt gaman!!

en jæja minns þarf að fara að sofa :o
bara ein og hálf vika í mig ;)
hlakka til að sjá ykkur elskurnar mínar :*:*
luvluv:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 12:57:27 / tordisgyda-

tvær vikur í heimkomu

jæja krakkar.. ekki mikið að ske hér.. smá veiði, þessi túr verður ekki eins goður og ég hélt hm...

en ég, fannar og erna erum að skoða utanlandsferðir þessa dagana og við vorum buin að finna stað sem við ætluðum á en svo er fótboltinn svo fyrir að við komumst ekki fyrr en í oktober :( þannig að við þurfum að bíða eftir að panta ferðina þangað til í sumar örugglega... en staðurinn heitir salou og er á spáni.. við förum örugglega ekki þangað ef við förum í oktober, verður allt lokað þá :/ öll tívolí og svona.. ekki gaman. ef þið vitið um flottan heitan stað, sem er hægt að liggja í sólbaði, drekka sig blindfullann af kokteilum á góðu diskói og eru með fullt af tívolíum og/eða dýragörðum þá ENDILEGA látið mig vita ;)

svo var ég að spá áðan (mikið að spá þessa dagana) hvort við frænkurnar ættum að kikja til svíþjóðar til möttu og ingu ;) bara i viku eða eitthvað fyrir þjóðhátíð eða eftir hana!?! hver er til haaa... annars verður það bara sumarbústaður þetta árið ef þið eruð frekar til í það ;) :o

svo var ég að spjalla við föður minn og hann ætlar að leyfa mér að fá íbúðina niðri um leið og Esther frænka fer.. ég er buin að vera skipuleggja það voða vel í hausnum á mér svona hvar a þetta að vera og hvað ég þarf að kaupa í ikea og svona.. já ég hef ekkert að gera annað á daginn en að hugsa ;P fun huh..

en jæja ætli þetta sé ekki gott í bili
 
bið að heilsa ykkur elskurnar minar:*:*

( ég vil fá comment)!!!!!!

Dísa out

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 01:14:26 / tordisgyda-

Mikil vinna framundan

jæja þá er maður kominn útá sjóinn og það er fullt að gera núna en seinustu daga var alveg ekki neitt að gera... spennó.. ég er alveg að deyja í bakinu! ég ligg á maganum á nóttinni og er svo að deyjma í bakinu þegar ég vakna.. ekki gott skal ég segja.. en vonandi verð ég ríkari þegar ég kem heim :) ég fer einmitt tvo túra í röð :o ég hlakka EKKI til.. langar helst að vera bara heima hjá mér að vinna..

ég var einmitt að fatta hvað mig langar að læra... loksins kom það upp í kollinn á mér... ég vil læra ljósmóðurina.. pabbi hló, spurði hvort ég þyrfti ekki að læra hjúkkuna fyrst.. :)

Svo þoli ég ekki eitt.. hvað er málið með fólk sem ákveður eitthvað fyrirfram, segir manni það og spyr hvort það vilji ekki taka þátt í því.. auðvitað ef það er eitthvað skemmtilegt eða eitthvað sem þroskar mann aðeins þá vill maður auðvitað taka þátt... en svo alltíeinu þegar maður talar um það tvemur mánuðum eftir þá er hugmyndin horfin.. ég er svo þannig að þegar ég er spennt fyrir einhverju þá veð ég í það og það eiginlega strax... ég er búin að vera spennt fyrir einu ákveðnu sem ég ætlaði svo mikið að gera og það var svo mikið inní því, ég er búin að vera að plana og ákveða.. ekkert skemmtilegra þegar maður lætur hugmyndaflugið fljúga yfir daginn, sérstaklega þegar maður er að vinna svona leiðinlega vinnu eins og ég er að vinna... en svo búmm, hugmyndin farin, eða einhver drullar yfir hana!! ég verð bara svo fokk pirruð yfir svona hlutum... 

en jæja yfir í allt annað.. ég sakna ykkar allra svo ótrúlega mikið.. ég verð alltaf algjör drama queen þegar eg kem herna um borð, ég er svo heimakær... fyrirgefiði stelpur að ég kom ekki á laugardagskvöldið að knúsa ykkur bless :( ég sé ótrúlega mikið eftir því.. rétt búin að sjá söru mína og hún farin aftur í borgina.. á örugglega ekkert eftir að sjáhana fyrr en í apríl :( hitti ykkur hinar þegar eg kem heim þarna í 5 daga á milli túra ;)

en jæja þetta er orðið svolítið langt.. ég ætla fara að lesa einn kafla í bókinni svo fögur bein :) ekkert smá ógeðsleg bók... en skemmtileg þó.. get varla hætt að lesa...

en þangað til næst...

Dísa heimakæra :* 


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 19:16:08 / tordisgyda-

Bed Heads

Jææææja krakkar...

Mér þykir voða leiðinlegt að ég ætla ekki að halda eitthvað stórt afmæli hehe.. en ég meina það vildi enginn mæta(eða gat ekki what ever).. ég ætla að halda afmæli fyrir mína nánustu núna á laugardaginn.. verður matur fyrir frænkur mínar og smartis og svo mæta kærastar og hitt fólkið bara aðeins seinna :) ég bíð þeim bollu, bjór og kannski eitt, tvö staup... Það verður svaðalegt fjör vonandi :)

En já ég og Fannsi minn erum búin að vera saman í 1 og hált ár í dag.. fórum út að borða áðan og ætlum örugglega að hafa það bara kósý í kvöld :) Fannar gaf mér einmitt Friends safnið í afmælisgjöf :D ég er ekkert smá ánægð með það :) erum einmitt ekki búin að horfa á neitt annað en Friends síðustu daga :)

Svo kom í ljós í vikunni að Fanney ástin í lífi mínu getur örugglega ekki komið í afmælið mitt :( Sara er að koma um helgina og ætluðum við að djamma svo svakalega að við myndum ekki geta staðið í lappirnar kl 1 :P eeeen ég vona svo rosalega að hún nær að redda vinnunni af því ég vil hafa alla ástarpungana mína hérna hjá mér þegar ég held upp á afmælið :o :P

Svo fór ég í ríkið á mánudaginn ( vúhú heppin ég) með Sigrúnu minni.. voðalega gaman eitthvað ;)

Svo fer að styttast í að Hjördís sys flytur uppí blokk í nýju fínu íbúðina sína og Esther frænka kemur hingað niður í kjallarann í einhvern smá tíma, held að pabbi ætli svo að taka kjallarann í gegn.. ( svo ætla ég að reyna að ræna honum þegar ég er komin heim af sjónum;) )

SVOOOO er ég að fara að kaupa ógeðslega flottan bíl :oooo Honda Civic Sedan beint uppúr kassanum :D hlakka ekkert smá til að koma heim í apríl og fara beint til darra og ná í hann ;) er einmitt að fara í vikunni að panta hann :D

Dísan kveður að sinni ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 15:31:18 / tordisgyda-

Afmælið verður ekki

Mér þykir leitt að segja að það verður ekkert úr þessu afmæli vegna lélegrar mætingar... 

SORRY!

kv.Þórdís


» 12 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 00:57:26 / tordisgyda-

tvær vikur í heimkomu

heil og sæl..

í dag eru tvær vikur í heimkomu og hlakka ég alveg GEÐVEIKT til að koma heim úff, ég er alveg farin að sakna allra þarna heima þótt það sé nú alveg ágætisfólk hérna en maður vill helst vera heima hjá sér þegar jólafýlingurinn er genginn í garð :) 

Í dag fórum við inná Norðfjörð, hin vaktin var svo heppin að vera á frívakt að hún fékk bara að fara í land og þau fóru í sjoppu og fóru og keyptu sér bjór og komu svo inní vinnslu með heila klabbið og glennti þessu svona svakalega framan í okkur.. sniðugt? okkur fannst það nú soldið ósanngjarnt en hvað er hægt að gera... akkurat ekki neitt...

Sjónvarpið mitt inní herbergi er bilað, það er EKKI hægt að tengja dvd spilara við það né horfa á sjónvarpsstöðvarnar, sem er frekar fúlt.. en eg fer fyrr að sofa, that's for sure :D sem betur fer á ég líka þennan fína ipod sem eg hlusta á og spila kapal í, hehe.. svakalegt líf hérna :P

Við erum að fiska vel og ætla ég líka að koma með miklu meiri pening heim en ég kom með síðast, og síðast var nu bara slatti fannst mér :D enda ætla ég að kaupa stórt kingsize rúm í janúar, kannski kemst maður á útsölur :) en ég verð nú samt að spara smá pening líka.

Ég sakna allra svo ótrúlega mikið, Fannar er nú orðin SKOLLÓTTUR, ég var í sjokki!! finnst að strákar eiga að vera með hár og sérstaklega smá lubba! eins og hann var með, hann notaði þá afsökun að hann hafði ekki tíma til að fara í klippingu! jááá svona er þetta.

Svo er Kristný og Erna búnar að vera voða sætar að kaupa jólagjafir fyrir mig í rvk, þær sem er voðalega erfitt að fá í eyjum..

ég hlakka svo til jólanna að ég er gjörsamlega að farast úr jólagleði, alltíeinu.. hugsa á kvöldin hvernig það verður þegar ég kem í land og knúsa alla mikið og kúra yfir desperate housewifes og svona gaman ohh, það verður ææææði :)

 en jæja pabbi er kominn inní klefa og farinn að röfla aðeins í mér þannig ég ætla bara fara niður, setja kalt vatn á brúsann minn, ná mér í tvær mandarínur og hoppa uppí rúm eins og versti lóner :D

Hvernig væri nú að commenta svo, voru dugleg við það síðast ;)

Sjóarinn kveður að sinni :*:* miss you


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 13:52:01 / tordisgyda-

Jólin - Áramótin Tvítugs afmælið mitt

jæææja þá er ég komin útá sjó, ekkert alltof skemmtilegt, var sjóveik í fyrsta skiptið á ævinni! pælíþví.. en já svo eru jólin að koma og ég er bara ekki i neinu jólastuði.. búin að vera spila helling af jólalögum en samt kemst ég í ekkert stuð :( en svona er þetta

En já afmælið mitt, eg er orðin svo spennt.. Esther og Silja rós ætla að hjálpa mér að skipuleggja þetta, vonandi koma þær með einhverja brandara, sem eg býst alveg við en svo aðalatriðið með afmælið, það verður KVIKMYNDAÞEMA..  jáááá ég og haffi komum með þessa brjáluðu hugmynd, lýst ekkert smá vel á hana :D svo verður vín í boði, matur og svo leigji ég sal.. ohh verður svo gaman :D:D:D svo verður bara uppáhaldsfólkinu boðið ;) neiii segji svona :D en það verður gaman :D ætla að bjóða húsógenginu minu og ég VONA INNILEGA að allir koma ;)svo auðvitað fjölskyldu og vinum :) og það verða náttúrulega allir að mæta í búning :) það er skilda:)

en já ég ætla bara að segja hvað e´g er strax byrjuð að sakna allra og ég vona að þessi túr eigi eftir að líða fljótt svo ég geti komið heim og knúsað alla innilega mikið, sérstaklega Fannar og Mömmu mína :*:* en jæja, ég ætla fara að leggja mig, ég var svo ótrúlega þreitt í morgun að ég sá kojuna mína í hyllingum, pælíþví ;)

Dísa ouuut :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 17:37:07 / tordisgyda-

Allt gott að frétta?

Jæja á maður að fara að segja frá helginni góðu :) hún var ekkert smá skemmtileg :D Þunn á sunnudag en það fylgir :p

En allavega þá kom erna sæta til okkar á þessa fögru eyju.. það var lítið gert á föstudag, ég fór með mömmu og hjördísi í búðir og við sóttum strákana og ég og mamma kúruðum yfir sjónvarpinu til svona 11 eða svo þannig ég hentist heim til tengdó og horfði á Die Hard 4.0.. hann er gæji hann Bruce :) en já svo kom Fannar alveg dauðþreyttur heim enda búin að vinna af sér rassgatið þannig við kláruðum myndina og fórum að sofa.

Laugardagurinn var skemmtilegri, ekkert snemma að sofa kjaftæði :) ég svaf út á meðan Fannar fór í vinnu og ég fór heim og var eitthvað með mömmu að prjóna og læti. síðan sagði Fannar mér að hann ætlaði að fara að djamma þannig ég ákvað bara líka að fara og fá mér í glas, þannig ég hringdi í Sigrúnu mína og hún var sko alveg til í að fá sér smá í tánna, þannig við hittumst um kvöldið, spjölluðum og héldum svo til Silju Rósar og þar voru Helena, Anna Kristín og Viktoría að djúsa þannig við fórum í einhverja drykkjuleiki, Sigrún hvarf. þannig ég fór að leita að henni en fann hana á endanum, svo bara var farið niðrí bæ, fullt af fólki að djamma!! spjallað við alla og svo fórum við Sigrún og ekki má gleyma ágústi, drivernum okkar, algjört æði þessi strákur, við héldum í frumsýningarparty þar sem Fanney var stödd og ég spjallaði við krakkana þar og þá fattaði eg að Sigrún væri aftur horfin. ég helt að hún hefði bara farið aftur niðrí bæ en svo var ekki, þannig ég hitti silju, gústaf og ingvar örn, þannig það lenti bara í frændsystkinadjammi, ekkert smá gaman, fórum í party svo bara var farið heim til silju og gústafs og gústaf gerði þetta æðislega góða pasta handa okkkur mmm... langar í það hehe :) það var farið í hlaupabrettaleik og svo dó ingvar í sófanum og ég tók taxa og var komin heim til Fannars um 8 leitið :) Fannar var æðislegur daginn eftir og fór og keypti hlölla handa mér og tók spólu handa okkur:* og já fannar hætti við að djamma.. hehe greyið var svo öfundsjúkur ;)

takk fyrir æðislegt kvöld allir :) skemmti mér konunglega :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 17:22:21 / tordisgyda-

Ég lofaði Comebacki

Jæja, þar sem síðan hjá okkur stelpunum er orðin svona meira blogg um djamm og svoleiðis, þannig ég ætla að koma mínum hugsunum út hérna á vefinn.

Ég og heittelskaði karlinn minn fórum til Rvk um helgina, bara svona af því það var frí í skólanum og hann þurfti nú að fara á landsliðsæfingar, stóð sig vel kallinn :) en já hvað er samt málið með þegar maður fer til Rvk þá eyðir maður svo miklu? Peningurinn flýgur gjörsamlega frá manni þegar maður kemur í bæinn, ég verð t.d. óð í skó, ég á svo mikið af þeim að ég þarf ekki meira, en samt verð ég alltaf að kaupa mér skó! ég held að aðrar stelpur hafa þetta vandamál, og hvað er líka málið með þegar maður fer að hitta vinkonur sínar í bænum þá fær maður að heyra slúður frá þeim úr eyjum... En nóg með pælingarnar í bili...

Við fórum til Önnu systir og Hemma í gær og fengum þennan fína mat, æðislegan eftirrétt, úú... ætluðum að spila en þá var Hanna litla svo vakandi að hún vildi ekki fara að sofa, hún er svo skotin í Fannari að hún hélt sér ekki frá honum :) 

Svo var hún Erna svo góð að leyfa okkur að lúlla hjá sér :) Við höfum bara gaman að því að gista hjá henni:) áttum að fá skemmtilegt show frá henni og Helgu á föstudaginn en þær guggnuðu svona svakalega á því, en það er alltílagi, SANDRA TÓK ÞETTA UPP. sleppið ekki frá okkur haha ;) mr. boombastic ;D

En jææææja comeback bloggið mitt heppnaðist vel held ég bara..

Hvað finnst þér? :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 17:22:01 / tordisgyda-

Hætt í bili með þessa síðu

WWW.blog.central.is/the-smartis

<--- ég og mínar erum með þessa síðu, ég á örugglega eftir að koma með comeback á þessa en ég hreinlega nenni ekki að vera með tvær síður.. annars bið ég að heilsa ykkur fallega fólki ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 16:14:12 / tordisgyda-

Helgin 13-16 apríl

þessi helgi var extra löng hjá mér :D en á föstudaginn þá kom sunna sæta til mín og við rúntuðum bara á föstudaginn og kvöldið og fórum svo í smá party til kollu, kíktum inn í nokkrar mínútur og fórum svo heim að sofa:)

á laugardeginum þá vaknaði sunna SNEMMA.. og ég bað hana að vekja mig um 11 leitið svo eg gæti nu verið eitthvað með stelpunni;) og við fórum bara að græja okkur og borðuðum og það var bara gott veður, okkur langaði soldið í sund en slepptum því þar sem sunna tók engin sundföt með sér :o enda skiljanlegt hehe ;) kom bara í tvo daga.. og við rúntuðum og fórum á leikritið himnaríki, það var svona lala... ekkert spes en þó nokkuð fyndið svo var haldið heim til sigrúnar h í söngkeppni framh.skóla, rúnar og co stóðu sig bara nokkuð vel :) var eigilega bara fúl að hann lenti ekki í í e-hverjum af fyrstu þrem sætunum :P en já við pöntuðum pizzu, tókum myndaflipp og drukkum.. fanney var alki kvöldsins, hún má eiga það ;) svo fórum við bara á ballið, voru BARA krakkar í 9-10bekk ekki alveg aldurshópurinn okkar hehe.. en þetta var fínt, sunna týndist nokkrum sinnum og stelpurnar voru á endalausri leit í strák handa mér, hehe luv jú guys:* held að stelpurnar ætla að taka rvk í strákaleit næst ;) en já svo löbbuðum við sunna bara saman heim og kúruðum saman í tvo-þrja tíma

ég og sunna vöknuðum alveg dauðar kl.7 á sunnudagsmorgninum og þá hringdi ég í önnu, anna ætlaði að sleppa óvissuferðinni okkar en ég bannaði henni það, þar sem hún talaði mig til í að fara í smá ferð uppá land hehe... en já ég sótti önnu, hún var ekki með símann sinn, ekki með veskið sitt og engan pening, og þar að auki ekki neitt makeup.. það er horror fyrir okkur stelpurnar strákar!! og ég dró hana samt með mer og allt reddaðist, ég þakka bara guði fyrir heimabanka á netinu;) hehe... en já við héldum í ferminguna hjá frænda okkar sem heitir Gunnar, seinastur að fermast af okkur frændsystkinum held ég þannig það var must að fara.. hann fékk crossara í fermingargjöf frá mömmu sinni og pabba.. hann var ýkt ánægður :) en já við hentum pálínu systir önnu á bsí og við fórum til sunnu að skipta um föt og héldum svo í bíó á perfect stranger.. MÆLI MEÐ HENNI ég var með í maganum þegar myndin endaði vá... alveg geðveik þessi mynd.. og svo fórum við smá rúnt með georg gömlum félaga okkar, hann er svo fyndin og ekkert breyttur þessi elska :) svo fórum við heim til sunnu og fórum að sofa, tókum reyndar smá svefngalsa þarna í endan sem var bara gaman :D vökrum sem betur fer engann :)

en jæja svona var ævintýrahelgin okkar, var meira þarna á milli sem ég nenni ekki að fara eitthvað nánar úti, þetta er orðið alltof langt blogg :D

en jæja ætla fara að læra :/

blessó ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2